Syngibjörg

Syngdu! Það bætir, hressir og kætir.

þriðjudagur, nóvember 13, 2007

Mánudagseintakið



Eins og ég er ánægð með bílinn minn á þessari mynd þá er ég það nú ekki núna.

Vandræðum okkar saman ætlar engann enda að taka.

Núna er það hvarfakúturinn og púströrið.
Það drynur um allan bæ þegar ég bregð mér á milli staða.

Og jú ég fæ reyndar smá athygli út á þetta og svona "hissa" svip hjá fólki.

Hvaða læti eru þetta í tónlistarkennaranum??
Getur hún ekki framkvæmt hljóð sín á minna áberandi stað en götum bæjarins.
Læti eru þetta alltaf í þessu tónlistarfólki.



Varahluturinn kemur með morgunfluginu í fyrramálið og ég fæ blá-mann vonandi seinnipartinn.

Þýðir samt að ég þarf skutl út í Bolungarvík (enginn strætó sem gengur á milli) og heim aftur og svo á kóræfingu. Frekar flókinn dagur á morgun og þá er ég bíllaus.


Ó, ó mig auma.

Og pyngjan léttist ógurlega við þessa uppákomu.


Og það eru að koma jól.............bráðum....


Þar fór jólagjafasparnaðurinn fyrir lítið

8 Comments:

  • At 14/11/07 12:10 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    sonasona, púst er eðlilegt viðhald sem maður þarf alltaf að sinna af og til :D

     
  • At 14/11/07 12:15 f.h., Blogger Syngibjörg said…

    Æi takk fyrir Hildigunnur mín fyrir "uppörvunina" :O)

    gat þetta ekki gerst bara eftir jóla HA???? er svo pissed....Urr

     
  • At 14/11/07 10:28 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Bömmer bömmer, versti tími a tarna. Haltu fast í annaruppbótina. Kveðja úr Hornafirði

     
  • At 14/11/07 11:11 f.h., Blogger Meðalmaðurinn said…

    Hvarfa hvað???

     
  • At 14/11/07 1:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    æ! sjitt! ömurlegt, þoli ekki bíla!


    samúð, samúð, samúð. knús og kram..

     
  • At 14/11/07 2:49 e.h., Blogger Ameríkufari segir fréttir said…

    Hvað ertu bara að segja? Finnst þér ömurlegt að þurfa að borga stóra summu í viðgerð á bíl á versta tíma? Þú ert bara skrýtin:)

     
  • At 14/11/07 9:52 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Heyrðu mig nú frú Ameríkufari, sendu bara bóndann til að gera við, til þess er hann menntaður og myndi gera þetta fyrir ekki neitt, eða hvað..? Mamma púki

     
  • At 14/11/07 10:26 e.h., Blogger Syngibjörg said…

    Hvarfakútur er eitthvað fyrirbæri sem er í bílum í dag. Veit ekkert meir um það nema þetta skrítna nafn.


    sko..ég er stórskrítin Svanfríður og sendu mér svo þennan mann haddna álfurinn þinn, BRÁÐVANTAR viðgerðarmann.

    Held ég verð að halda vel í annaruppbótina til að láta þetta ganga þó hún sé nú ekki mikil.

    urr.....

     

Skrifa ummæli

<< Home