Syngibjörg

Syngdu! Það bætir, hressir og kætir.

miðvikudagur, mars 07, 2007

Kvartið í Kára

Ég er að segja ykkur það....
hreint brjálað veður úti.

Þarf að halda fast í sængina mína í verstu hviðunum.
Kreisti aftur augun.

Verð hér vonandi á sama stað í fyrramálið.
Og þá tekur við snjómokstur.

Grunar að litli bílinn minn verði á kafi.

Hávaðinn í honum Kára er all svakalegur.

Honum liggur greinilega eitthvað mikið á hjarta.

2 Comments:

  • At 7/3/07 10:08 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    úff, ég heyrði af ótíðinni f. vestan og varð hugsað til þín. vonandi að allt gangi vel...

     
  • At 7/3/07 10:14 f.h., Blogger Syngibjörg said…

    Já þegar ég vaknaði í morgun var eins og einhver hefði sagt "hí, allt í plati" því það hafði hlánað og ég slapp við að moka mig út úr innkeyrslunni.

     

Skrifa ummæli

<< Home