Syngibjörg

Syngdu! Það bætir, hressir og kætir.

miðvikudagur, janúar 24, 2007

Hókus pókus, fílarókus........

Á morgun er stóri, langi og erfiði dagurinn minn í vinnunni.

Og það versta er að ég barasta hef ekki hugmynd um hvað
ég ætla að láta 5. bekkinn minn gera á morgunn.
Er að drepast úr andleysi.

Vonast eftir göldrum í nótt.
Að ég vakni með einhverja brilljant hugmynd í höfðinu.

Og ég held að mér sé reyndar ekki batnað.
En maður þrælar sér í vinnu samt sem áður.
Gamla góða harkan.
Yfirgefur mann seint.

7 Comments:

  • At 25/1/07 8:45 f.h., Blogger Hildigunnur said…

    oohh, kannast við svona daga og svona bekki. Var með einn erfiðan bekk í fyrsta tíma á miðvikudögum í fyrra; mér fannst alltaf vera komin helgi þegar hann var búinn...

     
  • At 25/1/07 11:42 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ertu með góðar upptökugræjur í skólanum? Kannski myndi 5. bekkurinn þinn vilja búa til pínu efni fyrir útvarpsþáttinn minn, Vitann. Bara svona 5-7 mínútur :)

     
  • At 25/1/07 1:34 e.h., Blogger Meðalmaðurinn said…

    Hættu bara að vera Vestfirskur Harðfiskur og vertu bresk blómarós í staðinn. Leyfðu þér að vera veik heima í 1-2 daga, súpa á tei með fersku engiferi og sítrónu og narta í gúrkusamloku. Þá verðurðu ekki bara flottust á ballinu á laugardaginn heldur líka fersk og fín!!

     
  • At 25/1/07 2:29 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Body percussion var alltaf eitthvað sem ég hafði svona til vara ef ég var andlaus-mjög skemmtilegt líka.

     
  • At 26/1/07 12:25 f.h., Blogger Syngibjörg said…

    Hildigunnur; reyndar er þessi bekkur ferlega skemmtilegur, bara ég sem var andlaus.

    Sigga: jahá sko, við værum alveg til í það, erum að æfa svaka flott skemmtiatriði fyrir árshátíðina og eigum flotta útsetnigu sem þau gerðu sjálf af tveimur lögum.
    er með email bjarneyi@isl.is. verðum í sambandi.

    Meðalmaður: flissaði hátt, vildi geta farið eftir þessu fína ráði, á það í handraðanum.

    Svanfríður: erum einmitt að gera stomp með glösum, hrikalega smart sem verður leyninúmer á árshátíðinni.

    Fékk svo andann yfir mig rétt áður en ég fór að sofa svona um iett leytið. Sumt getur bara ekki breyst.
    En það hitti í mark.

     
  • At 26/1/07 10:29 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Og hvað gerðir þú svo??!!! Guðlaug Hestnes

     
  • At 20/8/07 4:26 f.h., Blogger Javier Romero Naranjo said…

    Hallo,

    The world of Bodypercussion in DVD. Didactic of Bodypercussion:

    www.percusion-corporal.com

    Best Regards.

    Javier Romero Naranjo

    Telf. 0034 661 35 72 77

    www.percusion-corporal.com

    http://percusion-corporal.blogspot.com/

     

Skrifa ummæli

<< Home