Syngibjörg

Syngdu! Það bætir, hressir og kætir.

miðvikudagur, nóvember 21, 2007

Litli bróðir 30 ára.

Afmæli þú átt í dag
út af því við syngjum lag.
Sama daginn sem er nú
sannarlega fæddist þú.
Til hamingju með heilladaginn þinn
heillakallinn minn.


Allt þér gangi vel í vil
vertu áfram lengi til.
Allt þér gangi vel í hag
höldum upp á þennan dag.
Til hamingju með heilladaginn þinn
heillakallinn minn.

2 Comments:

  • At 22/11/07 7:34 f.h., Blogger Ameríkufari segir fréttir said…

    Elsku Syngibjörg mín-til hamingju með bróðir þinn. Að vera þrítugur er flottur aldur.
    En annað-geturðu nálgast netfang konu að nafni, Jóna Símonía Bjarnadóttir og býr á Ísafirði? Ég heyrði viðtal við hana á Rás 1 og langar svo að komast í samband við hana. Ég veit að þú hefur mikið að gera svo þú þarft bara að gera þetta ef þú getur og hefur tíma.
    Takk, Svanfríður.

     
  • At 22/11/07 10:02 f.h., Blogger Syngibjörg said…

    Takk Svanfríður, og ég skal finna út úr netfanginu hennar Jónu Símoníu- hef alveg tök á því;)

     

Skrifa ummæli

<< Home