Syngibjörg

Syngdu! Það bætir, hressir og kætir.

laugardagur, apríl 07, 2007

Lífið er ljúft

Er græjuð og fín á skíðum en flúði heim í dag vegna mikils kulda og vinds sem er afar óhagstætt að fá beint í fangið. Frekar kjánlalegt að þurfa að ýta sér niður brekkurnar.

Líður timbraðri í dag vegna óhóflegrar vöku yfir Trivial.
Smá blundur ætti að reka það burt og gera mann kláran í skötusels átið sem framundan er í kvöld.

Rokkhátíðin setur svip sinn á bæinn og er vonandi að í kvöld verði ekki þeir tæknilegu örðuleikar sem hrjáðu skipuleggjendur í gærkveldi. Stóð í heilar 40 mín. og beið eftir einhverri voða fínni hljómsveit frá London.

Ætla að fá mér lúr og leggjast svo í sjóðandi heitt bað.
Ætti að rekar nýkomnar skíðaharðsperrur í burtu.
Obbosí hvað ég var með fallegt göngulag í gær.

Langar að vera skvísa í kvöld og dilla mjöðmunum.

4 Comments:

  • At 7/4/07 9:52 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Gleðilega páska. Njóttu baðsins og rokkaðu feitt í kvöld þá hverfa harðsperrurnar. Kveðja úr Hornafirði. Guðlaug Hestnes

     
  • At 7/4/07 11:59 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    gaman! góða skemmtun og gleðilega páska:)

     
  • At 9/4/07 6:58 f.h., Blogger Halldís said…

    sástu blonde redhead? hvenær kemuru til köben????

     
  • At 10/4/07 1:12 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Jæja, dillaðir þú bossanum?

     

Skrifa ummæli

<< Home